Makalífeyrir

Ef maki þinn sem hefur verið sjóðfélagi Stafa eða verið lífeyrisþegi hjá sjóðnum hefur fallið frá, þá getur þú átt rétt á rétt á svokölluðum makalífeyri frá Stöfum.


Sótt er um makalífeyri með því að skila inn umsókn sem hægt er að nálgast á skrifstofu sjóðsins eða með því að smella hér og verður að skila henni inn útfylltri og undirritaðri. Einnig er hægt að fylla út umsókn rafrænt á netinu, undir liðnum Netumsókn hér til hliðar. Nauðsynlegt er að með umsókn fylgi eftirtalið:


  • Afrit af dánarvottorði
  • Afrit af hjúskaparvottorði



Ef sjóðfélagi sem var á eftirlauna- eða örorkulífeyri frá Stöfum eða greiddi iðgjald til Stafa a.m.k. 24 af undanfarandi 36 mánuðum fellur frá og lætur eftir sig maka, þá á eftirlifandi maki rétt á lífeyri.


Ef réttur til makalífeyris stofnast, þá er fullur makalífeyrir greiddur að lágmarki í 36 mánuði og 50% makalífeyrir er greiddur í 24 mánuði til viðbótar. Ef maki er a.m.k. 50% öryrki er greiddur makalífeyrir meðan sú örorka varir þar til maki nær 67 ára aldri. Ef sjóðfélagi lætur eftir sig eitt barn eða fleiri innan 19 ára aldurs, sem hann hefur átt með eftirlifandi maka sínum, er makalífeyrir greiddur fram að 19 ára aldri yngsta barnsins. Ef maki gengur í hjónaband eða hefur sambúð falla niður greiðslur makalífeyris.

Sérstakar reglur gilda um makalífeyri vegna iðgjalda er greidd voru til Samvinnulífeyrissjóðsins og er bent á að leita frekari upplýsinga á skrifstofu sjóðsins.

Lífeyrir greiðist mánaðarlega eftirá og er útborgunardagur síðasti virki dagur hvers mánaðar. Hann er greiddur í fyrsta sinn fyrir næsta mánuð eftir þann mánuð sem lífeyrisréttur myndaðist og í síðasta sinn fyrir þann mánuð er réttur til lífeyris fellur út gildi.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Hægra val




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.