Hér er búið að taka saman svör við nokkrum algengum spurningum. Starfsfólk sjóðsins veitir einnig fúslega ráð og upplýsingar varðandi lífeyrissjóðslán.
Hverjir eiga möguleika á að fá lífeyrissjóðslán hjá Stöfum?
Rétt til lántöku hafa allir sjóðfélagar. Sama rétt hafa þeir er fá greiddan makalífeyri frá sjóðnum og þeir sem eingöngu greiða til séreignardeildar.
Skilyrði lánveitingar til sjóðfélaga sem er fyrir með lán hjá sjóðnum er að lánið sé í skilum. Þrátt fyrir ofangreint er heimilt að andvirði nýs láns að frádregnu lántökugjaldi skuli notað til greiðslu vanskila eldri lána, sé um slíkt að ræða, áður en til útborgunar kemur.
Þeir sjóðfélagar er sjálfir standa skil á iðgjaldi sínu til Stafa lífeyrissjóðs verða að vera í skilum með iðgjöld til sjóðsins við afgreiðslu lánsumsóknar.
Sjóðurinn áskilur sér rétt til að hafna lánsumsókn.
Hvernig sæki ég um lán?
Hægt er að skila inn umsókn til sjóðsins eða sækja beint um á netinu. Lánsumsóknir eru teknar fyrir þegar þær berast en með umsókn skal fylgja:
-
Veðleyfi vegna áhvílandi veðskulda sé þess þörf.
-
Kaupsamningur ef um fasteignaviðskipti er að ræða, hafi þau átt sér stað síðastliðin þrjú ár.
-
Matsgjörð húseignar ef ekki liggur fyrir nýlegur kaupsamningur.
-
Matsgjörð ef húseignin er í smíðum.
-
Vottorð um að húseign í smíðum sé fokheld og brunatryggð.
- Síðustu kvittanir fyrir afborgunum af áhvílandi lánum samkvæmt veðbókarvottorði. Kvittanir sýni eftirstöðvar með verðtryggingu.
Sjóðurinn útvegar rafrænt veðbókarvottorð, fasteigna- og brunabótamat. Í einhverjum tilfellum er það ekki mögulegt og verður þá lántaki að útvega gögnin.
Hvar næ ég í veðbókarvottorð?
Lífeyrissjóðurinn hefur netaðgang að veðbókarvottorðum vegna flestra eigna á landinu.
Er hægt að fá lán gegn lánsveði?
Nei.
Hvar fæ ég fasteignamat?
T.d. hjá sjóðnum, bönkum o.fl. en einnig eru matstölur á fasteignaseðlum sem sendir eru út árlega til hvers fasteignareiganda.
Hversu hátt lán get ég fengið?
Ekker hámark er á upphæð lífeyrissjóðslána, svo framarlega að veðhæfi viðkomandi eignar sé innan þeirra marka sem stjórn sjóðsins ákveður á hverjum tíma. Sjóðurinn áskilur sér rétt til að krefjast greiðslumats af umsækjanda.
Hvar fæ ég greiðslumat?
Hægt er að að fá greiðslumat hjá bönkum.
Ég er með gamalt lán hjá ykkur. Á ég rétt á að taka annað nýtt lán hjá sjóðnum?
Já, ef greiðslugeta og fullnægjandi veð eru fyrir hendi.
Hvaða kröfur gerið þið um veð?
Lánað er gegn veði í íbúðarhúsnæði og að öðru leiti er vísað á lánareglur sjóðsins á hverjum tíma.
Get ég veðsett hvaða eign sem er?
Lánað er gegn veði í fasteignum.
Lánað er gegn veði í sumarbústöðum. Skilyrði er að það lán, sem lífeyrissjóðurinn veitir, að viðbættum áhvílandi forgangsveðskuldum, uppfærðum - séu þær verðtryggðar, má ekki vera hærra en sem nemur 60% af áætluðu söluverði. Lánstími skal þó ekki vera lengri en sem nemur tímalengd lóðaleigusamnings.
Hvorki er lánað út á ósamþykktar íbúðir né íbúðir sem lúta ákvæðum félagslega íbúðarkerfisins.
Ekki er lánað út á eignir sem eru með lægra fasteignamat er kr. 3.000.000.
Ekki er lánað hærri upphæð en sem nemur 100% af brunabótamati og lóðamati.
Ef veðsetning er hærri en brunabótamat og lóðamat er hægt að fá viðbótartryggingu hjá þínu tryggingarfélagi.
Eru einhverjar takmarkanir á því í hvað má nota lífeyrissjóðslánið?
Nei.
Hver er lánstíminn og vextir í dag?
Lánstími er 5 til 40 ár. Lánin eru verðtryggð m.v. neysluverðsvísitölu. Hægt er að sjá vexti nú hér á síðunni.
Hvað er langur afgreiðslutími lána?
Að jafnaði allt að hálfur mánuður.
Ég er lífeyrisþegi. Á ég rétt á láni?
Já.
Er hægt að greiða lán upp?
Já. Lán með breytilegum vöxtum má greiða upp hvenær sem er án nokkurs kostnaðar. Sama gildir um lán með föstum vöxtum útgefin fyrir 1. janúar 2007. Uppgreiðslugjald á lánum með föstum vöxtum, útgefnum eftir þann tíma, miðast við mismun vaxta á nýjum sjóðfélagalánum og föstum vöxtum skuldabréfs, þó að hámarki 2% af uppgreiðsluverðmæti skuldabréfsins.
Er hægt að greiða inn á höfuðstólinn?
Já. Greiða má inn á höfuðstólinn hvenær sem er án nokkurs kostnaðar.
Get ég breytt lánstímanum eftir að lánið hefur verið tekið?
Ekki er reiknað með að lánstíma sé breytt eftir á. Í slíkum tilfellum þyrfti að skuldbreyta láni.
Hver er kostnaðurinn við lántökuna?
- 1,5% stimpilgjald til ríkissjóðs
- 2.000 kr. þinglýsingargjald til sýslumanns
- 1,0% lántökugjald
Ef ég fæ lífeyrissjóðslán hjá Stöfum lífeyrissjóði í dag og ég sel húseignina síðar, getur nýr eigandi yfirtekið lánið á sömu kjörum eða þarf að greiða lánið upp?
Nýr eigandi getur yfirtekið lánið á sömu kjörum ef hann uppfyllir skilyrði fyrir lántöku. Verði skuldaraskipti á láninu og nýr skuldari er ekki sjóðfélagi áskilur sjóðurinn sér rétt til að hækka vexti lánsins um 1%.
Þú getur einnig flutt lánið með þér á næstu íbúð til að spara þér lántöku- og stimpilgjald. Í þeim tilfellum verður sjóðurinn þó að samþykkja nýtt veð.

